umsjón:
Hanna Friðriksdóttir og Karen Karlsdóttir Somji
Hanna Friðriksdóttir hefur skrifað um matarleg málefni um margra ára skeið, bæði fyrir Morgunblaðið og Gestgjafann. Hún er annars söngkona að starfa, en "ólæknandi sælkeri", eins og hún segir sjálf og mun seint geta slitið sig alfarið frá því að miðla matarást sinni til lesenda og nú síðast til lesenda matarlistar.is.
Karen Karlsdóttir Somji er ástríðukokkur og hefur um margra ára skeið tekið að sér "veisluþjónustu" fyrir vini og vandamenn. Hún var búsett um margra ára skeið í Kongó ásamt kanadískum eiginmanni sínum sem er indverskur að ætt og uppruna. Í matargerð Karenar gætir því sterkra áhrifa sunnan úr álfu jafnt sem úr öðrum hornum heimsins því vinahópur hennar er mjög alþjóðlegur og í gegnum hann hefur hún kynnst ólíkustu matarvenjum.
Leiðir þeirra Hönnu og Karenar lágu saman í hinu mikla matar- og vínlandi, Ítalíu þar sem þær eru báðar búsettar.
Hugmyndin með uppskriftabanka þessum er að miðla fólki uppskriftum að gómsætum réttum úr öllum áttum, sem e.t.v. gefa fólki nýjar og ferskar hugmyndir varðandi hvernig nýta megi íslenskt sem erlent hráefni í girnilegu samhengi. Auk þess verður reglulega boðið upp á fróðleiksmola um mat, vín og matargerð.
Bankinn er settur fram í formi matseðils (frá fordrykk til eftirréttar) og gefur fólki þannig í leiðinni leiðbeiningar varðandi það að setja saman matseðil. Menn pikka svo bara út það sem þeim hentar í það og það skiptið.
Eftir langa vinnuviku getur verið gott að fá hugmyndir sem oft vekja upp hugmyndaflugið og hleypa á sprett. Við hvern rétt er svo mælt með víni við hæfi.
Smelltu hér til að skoða matseðlana!
