Veldu einn eða fleiri möguleika. Cross search is available



Lavazza vinstri hlið mynd
Forsíða :: 

Uppskriftir

Vín frá Vín.is sem henta þessari uppskrift.

Bava Malvasia

Sendu okkur uppskrift

Senda vini

Prenta uppskrift

Stökk smjördeigsbaka með jarðarberjum

Smjördeig:
100 g smjör, vel kalt, skorið í bita
300 g hveiti
rifinn börkur af 1 lífrænni sítrónu
2 egg
1 tsk vanillusykur
150 g sykur
---------------
Vanillukrem:
100 g hveiti
1/2 l mjólk
6 eggjarauður
1 vanillstöng
200 g sykur
---------------
ofan á...:
200 ml vatn
500 g fersk jarðarber
50 ml jarðarberjasíróp
tertuhlaup í duftformi eða ca. 5-6 matarlímsblöð
safi úr 1/2 sítrónu

Útbúið vanillukremið á eftirfarandi hátt:
Látið suðu koma upp við vægan hita á mjólkinni (skiljið eftir hálft glas), setjið vanillustöng saman við, takið af hita og látið trekkja undir loki í u.þ.b. 10 mín.
Þeytið saman eggjarauður og ykur í skál með rafmagnsþeytara og sigtið hveitið saman við í smáskömmtum og þynnið með mjólkinni sem ekki var hituð.
Veiðið vanillustöngina upp úr volgri mjólkinni og bætið eggjasykurkreminu varlega út í pott. Hitið kremið upp og látið suðu rétt koma upp og hrærið stöðugt í. Hrærið þannig heitt kremið í örfáar mínútur, eða þar til kremið hefur þykknað örlítið og gætið þess að ekki komi kekkir. Í stað vanillustangar má nota vanilludropa eða vanillusykur og þá þarf náttúrlega ekki að láta trekkja. Sumir kjósa að bragðbæta kremið með sítrónuberki frekar en vanillu og þá er börkur settur í mjólkina og veiddur upp úr á sama hátt og um vanillustöng væri að ræða. Kælið krem áður en það er notað. Þekið pottinn eða skálina sem það er geymt í þar til er notað með röku viskustykki, þannig helst yfirborð kremsins mjúkt.
-------------------------
Smjördeigsbotn:
Blandið saman öllu innihaldi og hnoðið í jafna kúlu. Ath. mjög mikilvægt að smjörið sé vel kalt! Vefjið deigkúlunni inn í plastfilmu og látið bíða í kæli í ca. hálftíma. Smyrjið og látt hveitiberið b0kuform (ca. 28 cm. í þvermál), fletjið út deigið á hveitibornu borði í kringlótta köku sem skal ver um 34 cm. í þvermál og 6-7 millimetrar á þykkt. Komið deighringnum fyrir ofan í forminu og pressið með gaffaltönnum yfir deigkantana til að jafna þá og gera fallega. Stingið göt á deigbotninn með gaffli. Klippið út hring (með sama þvermál og formið) úr bökunarpappír og leggið yfir deigbotninn og bakið með bréfið ofan á, þannig harðnar botninn ekki um of við bökun. Bakið botninn við 180°C í 20-25 mínútur, eða þar til botninn hefur fengið á isg fallega létt gylltan lit og kantarnir eru lausir frá forminu. Takið botn út og kælið.
----------------------
Punkturinn yfir i-ið:
Skerið stilka af jarðarberjum, skolið og skerið til helminga eftir endilöngu. Losið kaldan bökubotninn úr formi og komið fyrir á tertudiski og smyrjið kældu vanillukreminu jafnt yfir og raðið svo helminguðum jarðarberjunum ofan á kökuna (byrjið næst köntum).
Jarðarberjahlaupið:
Hitið 200 ml af vatni og hellið 50 ml af jarðarberjasírópi saman við ásamt hlaupduftinu (eða uppleystum matarlímsblöðunum) og sítrónusafanum. Hrærið öllu vel saman, látið suðu koma upp og látið sjóða vægt í 2 mínútur. Slökkvið á hita og látið hlaupið volgna, hrærið af og til í. Dreyfið hlaupinu, enn volgu yfir jarðarberjatertuna með skeið. Berið fram. Tertan er frábær með góðu ávaxtatei, t.d. Red Zinger frá Celestial Seasonings
Vínið með:
Velja þarf vín með tertunni sem undirstrikar sætleika tertunnar og ferskleika berjanna. Vínið þarf á sama tíma að vera sætt til að passa við sætleika tertunna,en einnig að hafa eftirkeim til að vinna með ferskleika jarðarberjanna. Bava Moscato Bass Tuba og freyðivínið rómantíska Bava Malvasia di Castelnuovo Don Bosco
eiga t.d. bæði vel við tertuna.

Undirbúningstími: 1 klst.

Eldunartími: 20-25 mín.

Til baka
MYNDSKEIÐ
VÖRUMERKIN OKKAR
Rana Sacla logo. m ramma Fiorucci logo m. ramma De Cecco Cirio JEnsens m. ramma Drogheria & Alimentari Lavazza logo m. ramma Celestial Seasonings Icelandic Glacial San Pellegrino Lindt logo m. ramma Cloetta logo m. ramma Ritter Sprot logo m. ramma Storck logo m. ramma Delba Rajah

©2007 • Karlsson ehf. • Powered by: Hugurax • Design by Paolo Ramazzotti